Vandræðalegur skellur hjá Manchester United í deildabikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. ágúst 2014 20:59
Manchester United er úr leik í enska deildabikarnum í fótbolta eftir 4-0 skell á móti C-deildarliði MK Dons í kvöld. UNited-liðið hefur enn ekki unnið alvöru leik undir stjórn Louis van Gaal. Manchester United er bara með eitt stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í ensku úrvalsdeildinni og það bjuggust því flestir við að fyrsti sigur hollenska stjórans kæmi í kvöld. Stuðningsmenn Manchester United fengu ekki sigur heldur þurftu að upplifa vandræðalegt og sannfærandi tap á móti liði sem er tveimur deildum neðar. Will Grigg skoraði tvö fyrstu mörkin, á 25. og 63. mínútu, og varamaðurinn hans Benik Afobe bætti síðan við tveimur mörkum á lokakafla leiksins. Afobe var aðeins búinn að vera í nokkrar sekúndur þegar hann skoraði. Jonny Evans gerði sig sekan um slæm mistök í fyrsta marki leiksins og heilt yfir var vörnin hjá United í tómu tjóni í þessum leik í kvöld. Í stað þess að svara hinum megin á vellinum náði United-liðið aldrei upp takti í leiknum og varð á endanum að sætta sig við stóran skell. Stuðningsmenn og leikmenn MK Dons fögnuðu vel frábærum sigri en matraðarbyrjun Louis van Gaal heldur áfram.Jonny Evans var slakur í kvöld.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira