McDermott yfirgefur Leeds Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 31. maí 2014 12:45 McDermott vísir/getty
Leeds United og Brian McDermott hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að McDermott hætti sem knattspyrnustjóri félagsins sem leikur í Championship deildinni á Englandi, næst efstu deild. McDermott tók við Leeds í apríl 2013 og hefur á einu ári farið í hálfgerða rússíbanareið með félaginu. Í fyrstu gekk Leeds vel undir stjórn McDermott en í desember hrundi leikur liðsins og liðið féll hratt og örugglega niður töfluna.Massimo Cellino sem keypti Leeds á vormánuðum reyndi að reka McDermott í janúar, áður en kaup hans á félaginu voru gengin í gegn en Cellino rak 36 stjóra hjá Cagliari á þeim 22 árum sem hann átti félagið. McDermott hélt þó vinnunni og náði að halda liðinu í deildinni með ágætum úrslitum undir lok tímabilsins en liðið hafnaði í 15. sæti deildarinnar. „Ég áttaði mig ekki á því hversu slæmar vinnuaðstæður hans voru og hversu mörg svikin loforð hann þurfti að vinna með fyrr en ég kom til að reyna að snúa gengi Leeds við,“ sagði Cellino í fréttatilkynningu um brotthvarf McDermott. „Það hafa verið forréttindi að þjálfa þetta frábæra félag og ég hef notið áskoruninnar innilega,“ sagð McDermott í sömu fréttatilkynningu. „Það er ljóst að Massimo vill gera breytingar á skipulagi félagsins og hann telur að hann muni vinna betur með þjálfara við stjórn liðsins heldur en framkvæmdarstjóra,“ sagði McDermott sem þakkaði leikmönnum, starfsmönnum og stuðningsmönnum fyrir samstarfið.
Enski boltinn Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Sjá meira