Fyrsti úrvalsdeildarsigur Liverpool á Britannia Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 12. janúar 2014 00:01 Suarez var ekkert sérstaklega ósáttur við mark sitt. Nordic Photos/Getty
Liverpool lagði Stoke 5-3 á Britannia leikvanginum í Stoke í dag. Fyrsti sigur Liverpool gegn Stoke á útivelli í úrvalsdeildinni því staðreynd eftir mikla eyðurmerkurgöngu. Liverpool fékk sannkallaða óskabyrjun þegar Ryan Shawcross varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á fimmtu mínútu leiksins.Luis Suarez kom Liverpool á 2-0 á 32. mínútu og þá héldu margir að eftirleikurinn yrði auðveldur og verður að telja að leikmenn Liverpool hafi verið í þeim hópi því þeir hættu fram að hálfleik. Það nýtti Stoke sér og mörk frá fyrrum leikmönnum Liverpool, Peter Crouch á 39. mínútu og Charlie Adam á síðustu mínútu fyrri hálfleiks jöfnuðu leikinn. Liverpool hafði tapað þremur úrvalsdeildarleikjum í röð á Britannia og hinir tveir höfðu farið jafntefli en liðið lét söguna og áfallið að missa niður tveggja marka forystu á sex mínútum ekki slá sig út af laginu.Steven Gerrard skoraði úr vítaspyrnu á 51. mínútu og 20 mínútum síðar skoraði Suarez annað mark sitt eftir góðan undirbúning Daniel Sturridge og Liverpool aftur komið með tveggja marka forystu.Jonathan Walters minnkaði muninn þegar fimm mínútur voru til leiksloka og þó það hafi farið um stuðningsmenn Liverpool voru framherjar liðsins ákveðnir í að tryggja stigin þrjú og það gerði Sturridge þegar hann skoraði tveimur mínútum eftir að Walter minnkaði muninn. Liverpool er því aftur komið í fjórða sæti deildarinnar með 42 stig, fimm stigum frá toppnum. Stoke er í 12. sæti með 22 stig.
Enski boltinn Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport Fleiri fréttir Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sjá meira