Liverpool valtaði yfir Man. Utd á Old Trafford 16. mars 2014 00:01 Gerrard fagnar með félögum sínum í dag.
Liverpool vann frækinn sigur, 0-3, á Man. Utd á Old Trafford í dag. Sanngjarn sigur og það endanlega staðfest að Liverpool er með betra lið en Man. Utd í dag. Liverpool er enn í titilbaráttu. Komið í annað sætið og er aðeins fjórum stigum á eftir Chelsea og á leik til góða. Það var fast tekist á strax frá upphafi. Rafael, leikmaður Man. Utd, átti hörðustu tæklinguna er hann negldi Steven Gerrard niður. Fékk hann gult spjald fyrir það. Skömmu síðar var dæmd vítaspyrna á Rafael er hann handlék boltann innan teigs. Liverpool-menn vildu annað gult á Rafael og þar með rautt en fengu aðeins vítið hjá Clattenburg dómara. Spyrnuna tók Gerrard og hann skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni. Síðari hálfleikur var nyhafinn er Liverpool fékk aðra vítaspyrnu. Phil Jones keyrði þá í bakið á Joe Allen og vítaspyrna réttilega dæmd. Aftur steig Gerrard á punktinn og aftur skoraði hann örugglega. Sögulegt mark hjá Gerrard en hann hefur skorað flest mörk allra aðkomuliða á Old Trafford í úrvalsdeildinni. Vítaspyrnuveislunni var ekki lokið því Daniel Sturridge fiskaði víti stundarfjórðungi fyrir leikslok. Hann fiskaði ekki bara víti því Nemanja Vidic fékk einnig að líta rauða spjaldið og var eðlilega allt annað en sáttur við það. Þetta var í fjórða skiptið sem Vidic fær rautt gegn Liverpool. Gerrard gat skorað þrennu frá punktinum en skot hans fór í stöngina. Þetta var aðeins í þriðja skiptið í sögu enska boltans sem sama liðið fær dæmt á sig þrjú víti í leik. Sturridge átti að fá réttmætt víti nokkrum mínútum síðar en Clattenburg var ekki í stuði til þess að flauta fjórða vítið á heimamenn. Luis Suarez komst í dauðafæri skömmu síðar en David de Gea varði stórkostlega. Hann kom þó engum vörnum við aðeins tveim mínútum síðar er Suarez komst aftur í dauðafæri og rúllaði boltanum í fjærhornið. Suarez búinn að skora 25 mörk í vetur og hann er fyrsti leikmaður Liverpool sem nær því síðan Robbie Fowler náði þeim markafjölda fyrir ansi mörgum árum síðan.
Enski boltinn Mest lesið Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti Ólympíumeistarinn þarf að fara í kynjapróf til að fá að keppa Sport Sjáðu frábæra afgreiðslu Sveindísar Jane Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á kvöldið Sport Mikil öryggisgæsla í París þótt að úrslitaleikurinn fari fram í München Fótbolti Ancelotti: Brasilíska landsliðið mitt mun spila eins og Real Madrid Fótbolti „Þakklát fyrir að vera á leið aftur inn í jafn frábært umhverfi“ Körfubolti Stelpurnar hennar Betu réðu ekki við heimsmeistarana í lokin Fótbolti „Við í rauninni töpum tveimur stigum“ Fótbolti Samstarf HSÍ og Rapyd heyrir sögunni til Handbolti Fleiri fréttir Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Enn hærra metboð frá Liverpool Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Niðurbrotinn Klopp í sjokki Man City vilja Reijnders áður en HM félagsliða hefst Settu met í töpum en spila í Meistaradeild Evrópu Wirtz vill bara Liverpool og metupphæð komin á borðið Bein útsending: Englandsmeistaratitlinum fagnað í Liverpool Allt klárt fyrir fyrstu kaup Man. Utd í sumar Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Sjá meira