Enski boltinn

Manchester City á toppinn eftir 5-1 sigur á Gylfa og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/NordicPhotos/Getty
Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 5-1 sigur á Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum á White Hart Lane í kvöld. Tottenham var manni færri síðustu 40 mínútur leiksins.

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham en var tekinn af velli á 55. mínútu strax eftir að Manchester City komst í 3-0 og fimm mínútum eftir að Spurs-liði missti mann af velli.

Þetta var þó ekki eintóm gleði fyrir Manchester City því liðið missti argentínska sóknarmanninn Sergio Agüero meiddan af velli í fyrri hálfleik. Sergio Agüero hafði áður farið margoft illa með Michael Dawson, miðvörð Tottenham, og komið City í 1-0 eftir stungusendingu frá David Silva á 15. mínútu.

Manchester City hafði mikla yfirburði fyrsta hálftímann en Tottenham átti góðan endasprett og Michael Dawson skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu en það var umdeildur dómur.

Úrslitin réðust þó eiginlega á 50. mínútu þegar Danny Rose felldi Edin Džeko og fékk bæði rautt spjald og dæmt á sig víti sem Yaya Touré nýtti.

Edin Džeko skoraði þriðja markið skömmu síðar, Étienne Capoue minnkaði fljótlega muninn en Stevan Jovetić kom City síðan í 4-1 tólf mínútum fyrir leikslok. Það var síðan fyrirliðinn Vincent Kompany sem innsiglaði 5-1 stórsigur City undir lokin.

Manchester City er með eins stigs forskot og miklu betri markatölu en Arsenal sem tapaðið stigum á móti Southampton í gær. Þetta var áttundi deildarsigur Manchester City í röð og liðið er orðið afar sigurstranglegt í baráttunni um enska meistaratitilinn í ár.

Tottenham tapaði fyrri leiknum 0-6 á Ethiad-leikvanginum í Manchester og endar því með markatöluna 1-11 á móti City á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×