Gerrard tryggði Liverpool sigurinn í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2014 19:30 Vísir/Getty
Liverpool fylgdi eftir stórsigrinum á Arsenal um síðustu helgi með 3-2 endurkomusigri á botnliði Fulham á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Skelfilegt sjálfsmark Kolo Touré í upphafi leiksins kom Liverpool í vandræði og þá virtist Luis Suarez vera fyrirmunað að skora þrátt fyrir margar frábærar tilraunir. Það var hinsvegar Daniel Sturridge sem reddaði málunum en hann átti þátt í öllum þremur mörkunum og fiskaði vítið sem Steven Gerrard skoraði úr sigurmarkið á fyrstu mínútu í uppbótartíma. Liverpool lenti undir í tvígang í leiknum en tókst að koma til baka og landa þremur mikilvægum stigum í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Liverpool hefur nú þriggja stiga forskot á Tottenham sem vann stórsigur fyrr í kvöld. Kolo Touré heldur áfram að gefa andstæðingum Liverpool mörk en hann skoraði skrautlegt sjálfsmark strax á 8. mínútu þegar hann kiksaði lausa fyrirgjöf Kieran Richardson í eigið mark Daniel Sturridge jafnaði fyrir Liverpool á 41. mínútu eftir frábæra stungusendingu frá Steven Gerrard. Dæmigert mark fyrir framherjann eldfljóta. Kieran Richardson kom Fulham í 2-1 eftir önnur mistók miðvarðar Liverpool. Boltinn fór þá af Martin Skrtel fyrir fætur Richardson sem gat ekki annað en skorað. Liverpool jafnaði aftur leikinn níu mínútum síðar en Philippe Coutinho skoraði þá með skoti fyrir utan teig sem hafði viðkomu í varnarmanni Fulham. Daniel Sturridge lagði upp markið fyrir Coutinho og Sturridge fiskaði einnig víti á lokamínútu leiksins. Þjóðverjinn Sascha Riether sparkaði þá Sturridge klaufalega niður í teignum og Steven Gerrard skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni.
Enski boltinn Mest lesið Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Sjá meira