Stoke fór upp fyrir Tottenham | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2014 00:01 Bojan skorar fyrsta mark leiksins. Vísir/Getty
Stoke City lyfti sér upp í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-2 sigri á Tottenham Hotspur á White Hart Lane í dag. Vandræði Spurs halda áfram áfram en liðið er komið niður í 12. sæti deildarinnar með aðeins 14 stig eftir 11 leiki. Bojan Krkic kom Stoke yfir strax á 6. mínútu með góðu skoti. Þetta var ekki aðeins fyrsta mark Bojans fyrir Stoke heldur fyrsta markið sem hann skorar frá því í maí þegar hann skoraði fyrir Ajax í 2-2 jafntefli gegn NEC. Jon Walters tvöfaldaði forystu Stoke á 33. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu Mame Biram Diouf þvert fyrir markið. Tottenham ógnaði lítið sem ekkert þótt Mark Hughes hefði neyðst til að gera tvær breytingar á varnarlínu Stoke á fyrstu 25 mínútum leiksins. Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham, gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik; tók Christian Eriksen og Andros Townsend út af og setti Erik Lamela og Moussa Dembélé inn á þeirra stað. Um miðjan seinni hálfleik kom Emmanuel Adebayor svo inn fyrir Etienne Capoue og þá fyrst kom smá kraftur í Tottenham-menn. Á 76. mínútu átti Lamela gott skot beint úr aukaspyrnu sem Asmir Begovic, markvörður Stoke, varði, en hann kom engum vörnum við þegar Nacer Chadli minnkaði muninn tveimur mínútum síðar. Danny Rose gaf þá fyrir á fjærstöng frá vinstri, á Chadli sem þrumaði boltanum í netið af stuttu færi. Þetta var sjötta mark Belgans í deildinni í vetur. Kyle Naughton gerði liðsfélögum sínum svo erfiðara fyrir á 85. mínútu þegar hann þrumaði Victor Moses niður og Mike Jones, dómari leiksins, átti engan annan kost í stöðunni en að reka Tottenham-manninn út af. Skömmu síðar varði Hugo Lloris vel frá Steven Ireland, miðjumanni Stoke, í góðu færi. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og Stoke fagnaði sínum fjórða sigri í deildinni í vetur.Mörk Stoke Mark Tottenham
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira