Enski boltinn

Stoke fór upp fyrir Tottenham | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bojan skorar fyrsta mark leiksins.
Bojan skorar fyrsta mark leiksins. Vísir/Getty
Stoke City lyfti sér upp í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-2 sigri á Tottenham Hotspur á White Hart Lane í dag. Vandræði Spurs halda áfram áfram en liðið er komið niður í 12. sæti deildarinnar með aðeins 14 stig eftir 11 leiki.

Bojan Krkic kom Stoke yfir strax á 6. mínútu með góðu skoti. Þetta var ekki aðeins fyrsta mark Bojans fyrir Stoke heldur fyrsta markið sem hann skorar frá því í maí þegar hann skoraði fyrir Ajax í 2-2 jafntefli gegn NEC.

Jon Walters tvöfaldaði forystu Stoke á 33. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu Mame Biram Diouf þvert fyrir markið.

Tottenham ógnaði lítið sem ekkert þótt Mark Hughes hefði neyðst til að gera tvær breytingar á varnarlínu Stoke á fyrstu 25 mínútum leiksins.

Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham, gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik; tók Christian Eriksen og Andros Townsend út af og setti Erik Lamela og Moussa Dembélé inn á þeirra stað. Um miðjan seinni hálfleik kom Emmanuel Adebayor svo inn fyrir Etienne Capoue og þá fyrst kom smá kraftur í Tottenham-menn.

Á 76. mínútu átti Lamela gott skot beint úr aukaspyrnu sem Asmir Begovic, markvörður Stoke, varði, en hann kom engum vörnum við þegar Nacer Chadli minnkaði muninn tveimur mínútum síðar.

Danny Rose gaf þá fyrir á fjærstöng frá vinstri, á Chadli sem þrumaði boltanum í netið af stuttu færi. Þetta var sjötta mark Belgans í deildinni í vetur.

Kyle Naughton gerði liðsfélögum sínum svo erfiðara fyrir á 85. mínútu þegar hann þrumaði Victor Moses niður og Mike Jones, dómari leiksins, átti engan annan kost í stöðunni en að reka Tottenham-manninn út af. Skömmu síðar varði Hugo Lloris vel frá Steven Ireland, miðjumanni Stoke, í góðu færi.

Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og Stoke fagnaði sínum fjórða sigri í deildinni í vetur.

Mörk Stoke Mark Tottenham



Fleiri fréttir

Sjá meira


×