Dyke ekki bjartsýnn á breytingar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2014 10:39 Greg Dyke er harður andstæðingur Sepps Blatter. Vísir/Getty
Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, segir að England muni ekki bjóða sig fram til að halda heimsmeistaramót fyrr en breytingar hafa orðið á umsóknarferlinu og forystu FIFA. England bauð sig fram til halda HM 2018, en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir tilboði Rússa. Dyke er lítt hrifinn af Sepp Blatter, hinum umdeilda forseta FIFA, og hefur lagst opinberlega gegn því að Svisslendingurinn verði endurkjörinn sem forseti, en Blatter hefur gegnt embættinu frá árinu 1998. Næstu forsetakosningar FIFA fara fram í maí 2015. Dyke er þó ekki bjartsýnn á að breytingar verði á forystu FIFA. "Mörg knattspyrnusambönd í Evrópu hafa lýst því yfir að þau styðji ekki Blatter, en ég er hræddur um að hann njóti of mikils stuðnings á heimsvísu. "Ef hann býður sig fram verður hann kosinn," sagði Dyke sem tók við sem formaður enska knattspyrnusambandsins af David Bernstein fyrir ári síðan. Dyke var stjórnarformaður Brentford á árunum 2006-2013 og þar áður gegndi hann stöðu útvarpsstjóra hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. Dyke vakti athygli fyrr á þessu ári þegar hann sagði að enska landsliðið ætti ekki möguleika á að vinna HM 2014. Hann sagði ennfremur að England ætti að einbeita sér að því að komast í undanúrslit í Rússlandi 2018 og að vinna HM í Katar 2022.
Enski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir "Ekki hægt að halda HM í Katar að sumri til“ Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, segist harður stuðningsmaður þess að halda þurfi heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2022 utan Katar eða utan sumartímans. 10. ágúst 2013 18:30 Platini stoltur af uppreisn Evrópu gegn Blatter Forseti FIFA er undir pressu eftir ummæli sem hann lét falla í garð breskra blaðamanna. 11. júní 2014 11:45 Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Sjá meira
"Ekki hægt að halda HM í Katar að sumri til“ Greg Dyke, formaður enska knattspyrnusambandsins, segist harður stuðningsmaður þess að halda þurfi heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2022 utan Katar eða utan sumartímans. 10. ágúst 2013 18:30
Platini stoltur af uppreisn Evrópu gegn Blatter Forseti FIFA er undir pressu eftir ummæli sem hann lét falla í garð breskra blaðamanna. 11. júní 2014 11:45