Staðfesti áhuga Liverpool á Moreno Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. júní 2014 17:45 Tekur sig vel út í rauðu. Moreno var í undirbúningshóp spænska landsliðsins en fer ekki með til Brasilíu.
Forseti spænska félagsins Sevilla staðfesti í dag áhuga Liverpool á bakverðinum Alberto Moreno og mun klúbburinn ekki standa í veg fyrir honum komi ásættanlegt tilboð frá Englandi. Moreno sem er 21 árs var í 30 manna undirbúningshóp Spánverja fyrir HM en komst ekki í lokahópinn. Hann hefur verið orðaður við ýmis stórlið undanfarnar vikur og er talið að hann sé efst á óskalista Liverpool. Liverpool lenti í miklum vandræðum með vinstri bakvarða stöðuna á tímabilinu þegar landi Moreno, Jose Enrique meiddist snemma á tímabilinu. Aly Cissokho stóðst engan vegin væntingar sem til hans voru gerðar og neyddist Liverpol til að spila hægri bakverðinum Jon Flanagan þar. Flanagan stóð vakt sína vel en hann er hægri bakvörður að upplagi og er talið að Liverpool sjái langtíma lausn á vinstri bakvarða stöðunni en hún hefur verið lengi til vandræða hjá rauða hernum. "Það er rétt að Liverpool hefur áhuga á Moreno en hvert næsta skref er ekki víst. Við munum ekki neyða Moreno til þess að halda áfram hjá Sevilla en það þýðir ekki að hann fari ódýrt. Félagið er vel stætt fjárhagslega og við höldum okkur við okkar verðmat á leikmönnunum," sagði Jose Castro, forseti Sevilla, í samtali við sjónvarpstöð félagsins. Annar leikmaður liðsins, Ivan Rakitic hefur einnig verið orðaður við brottför undanfarnar vikur og hafa félög á borð við Manchester United, Real Madrid og Barcelona verið nefnd í því samhengi.
Enski boltinn Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Jorge Messi látinn Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Sjá meira