Enski boltinn

Agüero vill til Barcelona

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Agüero var magnaður í vetur
Agüero var magnaður í vetur vísir/getty
Faðir argentínska sóknarmannsins Sergio Agüero hjá Manchester City segir son sinn vilja fara til Barcelona en fréttir herma að spænska stórliðið sé að undirbúa 31 milljón punda tilboð.

Ekki er talið líklegt að Manchester City taki fyrsta tilboði Barcelona en Luis Enrique ný ráðinn knattspyrnustjóri Barcelona vill fá Argentínumanninn sem hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar undanfarinn tímabil.

Agüero er aðeins 25 ára gamall og er mikill vinur landa síns Lionel Messi stærstu stjörnu Barcelona.

Agüero er samningsbundinn Manchester City til ársins 2017 og ólíklegt að félagið sé tilbúið að selja, í það minnsta á minni pening en liðið keypti hann á sumarið 2011, 36 milljónir punda.

Leonel del Castillo faðir Sergio Agüero segir ekki líklegt að Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri City sé tilbúinn að selja son sinn.

„Hann myndi vilja fara til Barcelona en Manchester City mun koma í veg fyrir það,“ sagði pabbinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×