Enski boltinn

Le Tissier: Dýrlingarnir lifa þetta af

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luke Shaw og Adam Lallana gætu yfirgefið Southampton í sumar.
Luke Shaw og Adam Lallana gætu yfirgefið Southampton í sumar. Vísir/getty
Matthew Le Tissier, fyrrverandi leikmaður Southampton, trúir að sínir menn haldi áfram að bæta sig sem lið þrátt fyrir brotthvarf knattspyrnustjórans Mauricio Pochettino.

Argentínumaðurinn, sem stýrði Dýrlingunum í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, var fyrr í dag ráðinn knattspyrnustjóri Tottenham þannig nú hefst leit að eftirmanni hans.

„Mauricio hefur staðið sig vel þannig þetta er mikið högg, en það verður að líta á björtu hliðarnar. Þetta er gott tækifæri fyrir nýjan stjóra að koma inn og taka við stöðugu úrvalsdeildarfélagi,“ segir Le Tissier sem starfar í dag sem knattspyrnusérfræðingur Sky Sports.

Pochettino hefur búið til landsliðsmenn hjá Southampton en bæði AdamLallana og LukeShaw verða með enska landsliðinu á HM í sumar. Þeir eru eftirsóttir og gæti nýr stjóri tekið við liðinu án þeirra.

„Við gætum misst einn eða tvo leikmenn en þá ættu að vera til peningar fyrir nýjan stjóra til að byggja upp nýtt lið. Þetta félag hefur misst svo marga leikmenn á síðustu árum og er alltaf afskrifað. En alltaf komum við aftur og enduðum núna í 8. sæti úrvalsdeildarinnar. Það er engin ástæða fyrir því að það geti ekki gerst aftur,“ segir Matthew Le Tissier.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×