Allardyce ætlar hátt með West Ham Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 10. maí 2014 11:45 Allardyce ætlar sér stóra hluti vísir/getty
Sam Allardyce knattspyrnustjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hefur mikinn metnað fyrir því að lyfta félaginu á hærri stall og vinna titla fyrir félagið. Hann ætlar að byrja á að skemma fyrir Manchester City á morgun. „Ég vil komast í Evrópu. Ég vil flytja inn á nýja leikvanginn. Ég vil vinna bikar. Ef ég hefði ekki metnað þá væri ég ekki í þessu starfi,“ sagði Sam Allardyce á blaðamannafundi vegna leiks West Ham og Manchester City í Manchester á morgun. „Ég hef mikinn metnað. Getur West Ham fullnægt metnaði mínum? Það kemur að því já. Það fer eftir því hvort allir hafi þolinmæði til bíða eftir að við náum þeim árangri. Það er vandamálið í dag, skortur á þolinæði.“ West Ham flytur á nýjan heimavöll árið 2016, ólympíuleikvanginn í Lundúnum en Allardyce er ekki bjartsýnn á að vera stjóri liðsins þegar að því kemur þrátt fyrir að fundur hans með David Sullivan, stjórnarformanni og stærsta eiganda félaginsins, hafi ekki gefið neitt annað til kynna en að starf hans sé öruggt. „Meðal líftími knattspyrnustjóra í starfi er 13 mánuðir og því er ekki raunhæft að ég verði hér enn á þeim tímapunkti. Það hafa aldrei verið meiri stjórabreytingar í úrvalsdeildinni og þú veist aldrei hvað verður um þig. „Þetta félag var í næst efstu deild þegar ég kom og ég hef náð þeim árangri sem farið var fram á. Ég gerði það sem Gus Poyet gerði hjá Sunderland en það var fyrir sex, sjö vikum síðan. Ef ég hefði gert það núna væru allir að hrósa mér núna,“ sagði Allardyce. Ætlar að skemma fyrir CityWest Ham er í 12. sæti deildarinnar og getur ekki komist ofar en liðið sækir Manchester City heim á morgun í loka umferðinni þar sem City getur með sigri tryggt sér meistaratitilinn. „Leikmenn mínir geta farið út og gert sitt besta vitandi að sæti okkar í deildinni er öruggt, við förum því út til að skemma fyrir City.“
Enski boltinn Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti Fleiri fréttir Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Sjá meira