City fór á toppinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2014 00:01
Manchester City steig stórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum með sigri á Everton á Goodison Park í fimm marka leik. Það var ungstirnið Ross Barkley sem kom heimamönnum yfir eftir 11 mínútna leik með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig. Barkley valdi heldur betur rétta leikinn til að skora því landsliðsþjálfarinn Roy Hodgson fylgdist með leiknum á Goodison Park, en það verður að teljast ansi líklegt að Barkley verði í HM-hópi Englendinga í sumar. Argentínumaðurinn Sergio Aguero jafnaði leikinn á 22. mínútu eftir sendingu frá Yaya Toure, en Aguero fór meiddur af velli eftir að hafa skorað. Tveimur mínútum fyrir leikhlé kom Edin Dzeko Manchester City yfir og Bosníumaðurinn var aftur á ferðinni á 48. mínútu þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf frá Samir Nasri. Dzeko hefur nú skorað 14 mörk í úrvalsdeildinni, en tíu þeirra hafa komið á útivelli. Romelu Lukaku minnkaði muninn eftir 65 mínútna leik þegar hann skallaði fyrirgjöf Leightons Baines í netið, en nær komust Everton-menn ekki og gestirnir fögnuðu því 3-2 sigri sem gæti reynst gulls ígildi í baráttunni um enska meistaratitilinn. Manchester City og Liverpool eru nú jöfn á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 80 stig. City er hins vegar með betri markatölu - +59 gegn +50 - situr því á toppnum. Bæði lið eiga tvo leiki eftir og vinni City þá verða þeir meistarar, nema markatala Liverpool stökkbreytist. Everton situr í 5. sætinu og á ekki lengur möguleika á að ná Meistaradeildarsæti.
Enski boltinn Tengdar fréttir Góður sigur West Ham West Ham vann góðan 2-0 sigur á Tottenham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 3. maí 2014 00:01 Enski boltinn | Fulham og Cardiff féllu Fulham og Cardiff féllu úr ensku úrvalsdeildinni í dag. Bæði liðin töpuðu sínum leikjum og vegna sigurs Sunderland á Manchester United á sama tíma var ljóst að hvorugt þeirra gat náð Sunderland að stigum. 3. maí 2014 00:01 Larsson reyndist örlagavaldur Sigurmark Sebastians Larsson gegn Manchester United á Old Trafford gerði endanlega út um vonir Fulham og Cardiff að bjarga sér frá falli, en hvorugt liðanna, sem töpuðu bæði í dag, getur nú náð Sunderland að stigum. 3. maí 2014 00:01 Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira
Góður sigur West Ham West Ham vann góðan 2-0 sigur á Tottenham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 3. maí 2014 00:01
Enski boltinn | Fulham og Cardiff féllu Fulham og Cardiff féllu úr ensku úrvalsdeildinni í dag. Bæði liðin töpuðu sínum leikjum og vegna sigurs Sunderland á Manchester United á sama tíma var ljóst að hvorugt þeirra gat náð Sunderland að stigum. 3. maí 2014 00:01
Larsson reyndist örlagavaldur Sigurmark Sebastians Larsson gegn Manchester United á Old Trafford gerði endanlega út um vonir Fulham og Cardiff að bjarga sér frá falli, en hvorugt liðanna, sem töpuðu bæði í dag, getur nú náð Sunderland að stigum. 3. maí 2014 00:01