Enski boltinn

Engar viðræður vegna Lallana og Shaw

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luke Shaw í leik með Southampton.
Luke Shaw í leik með Southampton. Vísir/Getty
Forráðamenn Southampton segja það rangt að þeir Adam Lallana og Luke Shaw eigi nú í viðræður við önnur félög um möguleg vistaskipti í sumar.

Báðir eru orðaðir við Manchester United, sérstaklega hinn átján ára Shaw sem þykir einn efnilegasti leikmaður Englands í dag.

„Fullyrt hefur verið í fréttum að sumir leikmanna okkar eigi í viðræðum um félagaskipti en það er rangt,“ sagði Les Reed, einn stjórnarmanna Southampton, við enska fjölmiðla.

„Eins og málin standa nú hafa engar fyrirspurnir borist frá öðrum félögum í okkar leikmenn. Engin tilboð heldur og er það allur sannleikurinn.“

„Engu félagi hefur þar að auki verið veitt leyfi til að ræða við samningsbundna leikmenn hjá Southampton,“ sagði Reed og bætti við að líklega yrði öllum fyrirspurnum svarað með þeim skilaboðum að viðkomandi væri ekki til sölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×