Varamaður Arons Einars tryggði Cardiff stig á síðustu stundu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 14:30 Mats Moller Daehli fagnar jöfnunarmarkinu. Vísir/Getty
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City náðu í stig á útivelli á móti West Bromwich Albion í dag þrátt fyrir að lenda tveimur mörkum undir eftir aðeins níu mínútna leik. Leikurinn endaði með 3-3 jafntefli eftir tvö mörk í uppbótartíma. Leikurinn var frábær skemmtun, sannkallaður sex stiga fallbaráttuslagur þar sem bæði lið þurftu á stigum að halda. Dramatíkin var síðan í hámarki í blálokin þegar bæði lið skoruðu á lokasekúndum leiksins. Stigið er gríðarlega mikilvægt fyrir velska liðið sem er enn í fallsæti en Cardiff-menn hefðu misst WBA-liðið sex stigum á undan sér hefði leikurinn tapast. Aron Einar fékk bara fyrri hálfleikinn í dag en Ole Gunnar Solkskjær tók hann útaf í hálfleik og setti Mats Moller Daehli, 19 ára landa sinn, inná í staðinn. Aron Einar hefur ekki fengið mörg tækifæri að undanförnu. Mats Moller Daehli átti eftir að ráða úrslitum í leiknum því hann tryggði Cardiff stig með jöfnunarmarki á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Leikurinn byrjaði skelfilega fyrir Cardiff liðið því þeir Morgan Amalfitano og Graham Dorrans komu WBA í 2-0 á fyrstu níu mínútunum. Aron Einar átti síðan stoðsendinguna á Jordon Mutch sem minkaði muninn með skoti utan af kanti á 30. mínútu. Það var þó ekki nóg til að Solkskjær héldi honum inn á vellinum. Steven Caulker jafnaði metin á 73. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Gary Medel en það var ekki síðasta markið í leiknum. Bæði liðin skoruðu í uppbótartímanum, Thievy Bifouma kom WBA í 3-2 eftir fyrirgjöf frá Saido Berahino en Norðmaðurinn tryggði Cardiff stigið með marki á síðustu stundu.
Enski boltinn Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Fleiri fréttir Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Sjá meira