Manchester City tókst ekki að komast á toppinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 00:01
Arsenal og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates-leikvanginum í kvöld í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Manchester City tókst þar með ekki að nýta sér tap Chelsea á móti Crystal Palace fyrr í dag en sigur hefði skilað City-liðinu upp í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City er nú tveimur stigum á eftir toppliði Chelsea en á enn tvo leiki inni á Chelsea. Liverpool er síðan einu stigi á eftir Chelsea og kemst í toppsætið með sigri á Tottenham á morgun. Sjálfsmark Mathieu Flamini kostaði Arsenal sigur á móti Swansea um síðustu helgi en að þessu sinni skoraði hann í rétt mark og það reyndist vera jöfnunarmark leiksins. Þetta voru sanngjörn úrslit en baráttuandi Arsenal-manna hefði kannski getað skilað þeim öllum stigunum. Arsenal hefur byrjað skelfilega í mörgum leikja sinna á móti toppliðunum og enn á ný lenti liðið undir snemma leiks. David Silva kom Manchester City í 1-0 á 18. mínútu þegar hann fylgdi á eftir úr markteignum þegar Edin Dzeko skaut í stöngina. Ólíkt mörgum öðrum leikjum gegn bestu liðum deildarinnar þá áttu Arsenal-menn meiri svör í kvöld og liðinu tókst að vinna sig inn í leikinn. Það var engin uppgjöf í liðinu sem var mikill munur frá tapleikjunum á móti Chelsea og Liverpool. Mathieu Flamini hélt að hann hefði jafnaði metin nokkrum mínútum eftir mark David Silva en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Arsenal mátti alls ekki tapa leiknum og þeir Tomas Rosicky og Santi Cazorla fóru fyrir áhlaupi liðsins í kjölfarið á marki City. Mathieu Flamini var aftur á ferðinni á 53. mínútu og þá var markið hans dæmt gilt. City-menn gleymdu honum í teignum og Flamini skoraði með laglegu viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf frá Lukas Podolski. Arsenal hafði reyndar heppnina með sér skömmu áður þegar Per Mertersacker var ótrúlega nálægt því að setja boltann í eigið net. Arsenal-menn reyndu að sækja öll stigin á lokakafla leiksins en City-menn héldu út og jafnteflið varð niðurstaðan.
Enski boltinn Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Sjá meira