Enski boltinn

Eigandinn stoppaði kaupin hjá Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Yevhen Konoplyanka.
Yevhen Konoplyanka. Vísir/AFP
Liverpool tókst ekki að ganga frá kaupunum á Úkraínumanninum Yevhen Konoplyanka á lokadegi félagsskiptagluggans í gær og það þrátt fyrir að mikill áhugi væri bæði hjá Liverpool og leikmanninum sjálfum.

Það fór svo þannig að Liverpool náði ekki að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir baráttuna um að komast inn í Meistaradeildina eitthvað sem flestir töldu að væri liðinu lífsnauðsynlegt.

Yevhen Konoplyanka var þó búinn að gangast undir læknisskoðun í Kænugarði og hafði auk þess samþykkt samningstilboð Liverpool.  Hann er 24 ára vængmaður sem hefur verið að gera góða hluti með bæði Dnipro og úkraínska landsliðinu.

Konoplyanka er metin á kringum fimmtán milljónir punda en Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði að það hafi ekki verið Liverpool og vinnu starfsmanna félagsins að kenna að kaupin gengu ekki í gegn.

Vandamálið var að eigandi Dnipro neitaði að skrifa undir pappírana þegar á hólminn var komið og því verður Yevhen Konoplyanka áfram leikmaður úkraínska liðsins.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×