Utan vallar: City langbest og bullið í Mourinho Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2014 09:59 Leikmenn City hafa skorað 68 mörk í leikjum sínum 23 í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Þeir skoruðu 66 mörk í öllum 38 leikjunum í fyrra. Vísir/Getty
Manchester City er komið í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu og verður þar út leiktíðina. Eftir veisluna á White Hart Lane í gærkvöldi, þar sem liðið bauð enn einu sinni upp á markasúpu. dylst engum að liðið er það besta í deildinni. Tottenham hafði nælt í 16 stig af 18 í síðustu sex deildarleikjum sínum og þyrsti í hefnd eftir 6-0 niðurlæginguna á Etihard fyrr í vetur. Liðið leit út eins og utandeildarlið gegn úrvalsdeildarliði. Leikmannahópur City er sá langsterkasti í deildinni. Hugtakið maður kemur í manns stað virkar svo sannarlega hjá liðinu sem er að blómstra undir stjórn Manuel Pellegrini. Sergio Agüero haltraði af velli undir lok fyrri hálfleiksins en þrátt fyrir að erfitt sé að benda á betri framherja í deildinni þá fyllir einhver annar í skarðið. Í gær var það Stevan Jovetic sem nýtti auðvitað tækifærið og skoraði. Þótt Roberto Mancini hafi vissulega skilað langþráðum titlum til strákanna í ljósbláu þá unnust þeir titlar með herkjum. Að liðið hafi ekki unnið titil á síðustu leiktíð er með ólíkindum en hafa verður í huga að Yaya Toure tók sér eitt ár í pásu. Þessa leiktíð ákvað hann að verða aftur besti miðjumaðurinn í deildinni og með hann í bílstjórasætinu tekst engu liði að stöðva City. Já, svo er þessi David Silva ágætur líka. Fótboltinn sem City spilar er ekki aðeins árangursríkur heldur stórskemmtilegur. Liðið hefði getað verið komið í 4-0 eftir tuttugu mínútna leik gegn Tottenham. Leikmenn Lundúnaliðsins geta huggað sig við að hafa fengið bestu sætin til að fylgjast með besta liði Englands og besta liði í heimi að mati Tim Sherwood, stjóra Tottenham. Hvað annað geturðu sagt eftir útreiðina sem leikmenn þínir fengu í gærkvöldi? Auðvitað var vítaspyrnudómurinn tóm steypa en liðin tvö voru einfaldlega hvort í sínum gæðaflokknum.Mourinho var allt annað en sáttur við að leikmenn West Ham gáfu sér tíma þegar þeir fengu tækifæri til.Vísir/AFP Ellefu leikmenn West Ham áttu svo sannarlega skilið að fagna stiginu sem liðið náði í á Stamford Bridge í gær. Í 97 mínútur vörðust þeir með kjafti og klóm gegn stjörnuliði Chelsea sem virtist fyrirmunað að skora. Engu skipti þótti Jose Mourinho, stjóri Chelsea, næði að kreysta út þrjár aukamínútur í viðbótartíma eftir mótmæli við fjórða dómara. West Ham hélt markinu hreinu.Viðbrögð Mourinho í viðtölum eftir leik voru heldur fyrirsjáanleg. Portúgalinn er aldrei líklegur til að gagnrýna eiginn leikmenn. Leikmenn Chelsea skutu 39 sinnum á mark West Ham og stundum úr algjörum dauðafærum. Einhvern tímann hefði Frank Lampard tryggt liðinu sigur úr færi sínu í viðbótartíma. Sömu sögu er að segja um Eden Hazard. Skotin voru slök og skylduvörslur fyrir Adrian í markinu þótt tæpt hafi staðið. Nei, í stað þess að benda á klúður eigin leikmanna gagnrýndi Mourinho leikstíl liðsmanna Sam Allardyce. Eins og hann hafi ekki átt von á því að West Ham myndi verjast af krafti? „Þeir voru ekki með ellefu leikmenn fyrir aftan boltann heldur ellefu leikmenn inni í eigin vítateig,“ sagði Mourinho meðal annars í útvarpsviðtali við BBC og benti á að virði ensku úrvalsdeildarinnar hefði ekki aukist með þeim fótbolta sem West Ham hefði boðið upp á. Nítjándu aldar fótbolta. Gullfiskaminni hjá Mourinho? Nei, líklega bara sama endalausa sálfræðistríðið við aðra knattspyrnustjóra og vörn fyrir eigin leikmenn. Mourinho hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar „lagt rútunni“ til að ná í úrslitin sem hann þurfti. Ekki blés hann til sóknar með Inter á Nývangi í Meistaradeildinni um árið og hið sama má segja um heimsókn Chelsea til Arsenal og Manchester United í deildinni í vetur. Þá leiki nálgaðist hann varfærnislega og með það að markmiði að tapa ekki leiknum. Það var markmið West Ham í gær. Það náðist. Markmið Mourinho náðist ekki. Það er svekkjandi.Adam Johnson fagnar sigurmarki sínu gegn Stoke á Ljósvangi í gær.Vísir/AFP Heitasti maðurinn í ensku úrvalsdeildinni í dag er líklega Adam Johnson. Það fer vel á því að fyrrum leikmaður Manchester Citiy sé í fantaformi en sá örvfætti hefur komið að eða skorað síðustu sjö mörk Sunderland. Í gær skoraði hann eina markið í 1-0 heimasigri á Stoke sem hefði allt eins getað unnið sigur í leiknum. Frá nýársdegi hefur Sunderland ekki tapað leik ef frá er talið 2-1 „tapið“ gegn Manchester United í undanúrslitum deildabikarsins. Ég efast um að leikmenn Gus Poyet minnist leiksins sem tapleiks. Loksins, eftir að hafa setið í fallsæti frá því í ágúst, hafa Svörtu kettirnir yfirgefið svæðið óvinsæla sem neðstu þrjú lið deildarinnar manna.Besta leiðin til að bæta upp fyrir sjálfsmark? Skora draumamark á hinum endanum.Vísir/AFP Endurkoma gærkvöldsins var í boði Fabian Delph, leikmanns Aston Villa. Leedsarinn fyrrverandi skoraði sjálfsmark í grannaslagnum gegn West Brom sem varð til þess að gestirnir komust í 2-0 eftir aðeins níu mínútur. Útlit fyrir leiðindakvöld á Villa Park fyrir Delph og félaga. Hálftíma síðar voru það Delph og félagar sem fögnuðu. Þá hafði Englendingurinn skorað mark kvöldsins með óverjandi vinstri fótarskoti í vinkilinn. Heimamenn komnir í 3-2. Einhvers staðar sat meira að segja Robbie Fowler og gapti. Þvílík afgreiðsla. Svo fór að Villa vann 4-3 sigur í leiknum en þeir geta þakkað Úrúgvæjanum Diego Lugano fyrir hans þátt í sigrinum. Miðvörðurinn lagði upp fyrsta mark Villa með misheppnuðum skalla, braut á Christian Benteke svo úr varð víti sem sigurmarkið var skorað úr og kórónaði leik sinn með leikaraskap og gulu spjaldi fyrir kröftug mótmæli. Er ég ekki að gleyma einhverju? Jú, hann klúðraði besta færi leiksins í seinni hálfleiknum. Englendingar eru strax farnir að vona að Lugano verði í svipuðu formi er landslið þjóðarinnar mætir Úrúgvæ í Sao Paulo þann 19. júní á HM í Brasilíu.
Enski boltinn Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Stelpurnar unnu Svía Fótbolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Sjá meira