Enski boltinn

Norskt lið bauð átta milljónir í Kára

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Árnason í leik með Rotherham.
Kári Árnason í leik með Rotherham. Vísir/Getty
Enska C-deildarliðið Rotherham United hefur hafnað tilboðum frá norsku liðunum Rosenborg og Bodö/Glimt í landsliðsmanninn Kára Árnason.

Fram kemur í frétt BBC að Bodö/Glimt hafi boðið 50 þúsund evrur í Kára eða tæpar átta milljónir króna. Ekki er vitað hvort að tilboð Rosenborg hafi verið hærra.

Forráðamenn Rotherham vilja alls ekki missa Kára sem kom til liðsins árið 2012. Samningur Kára við félagið rennur þó út í lok tímabilsins.

Kári hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu og hefur komið við sögu í 28 leikjum með Rotherham þetta tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×