Enski boltinn

40 milljóna punda boð í Mata

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Juan Mata hefur verið jafnbesti leikmaður Chelsea undanfarin tvö tímabil.
Juan Mata hefur verið jafnbesti leikmaður Chelsea undanfarin tvö tímabil. Vísir/AFP
Manchester United hefur gert tilboð í Spánverjann Juan Mata hjá Chelsea samkvæmt heimildum Sky Sports.

Mata hefur varið töluverðum tíma á bekknum hjá Chelsea undir stjórn Jose Mourinho. Spánverjinn sókndjarfi virðist ekki passa inn í hugmyndafræði portúgalska stjórans og talinn vilja söðla um.

Samkvæmt heimildum Sky Sports var 40 milljóna tilboð gert í gegnum þriðja aðila. Hvorugt félagið hefur viljað staðfesta að tilboð hafi verið gert.

United þarf að efla leikmannahóp sinn en frammistaða liðsins í deildinni hefur valdið vonbrigðum. Chelsea mun hagnast töluvert á kaupunum ef af verða en Mata var keyptur frá Valencia árið 2011 á 23.5 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×