Enski boltinn

Mourinho: Gott fyrir Juan og gott fyrir ensku úrvalsdeildina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Juan Mata.
Juan Mata. Vísir/NordicPhotos/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, tjáði sig um söluna á Juan Mata frá Chelsea til Manchester United á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar. Jose Mourinho var í góðu skapi á fundinum og var ánægður með þann pening sem Chelsea fékk fyrir Mata.

Manchester United borgar Chelsea 37 milljónir punda fyrir spænska miðjumanninn og Jose Mourinho er mjög sáttur með að fá inn pening til að styrkja Chelsea-liðið fyrir lokaátökin á tímabilinu.

„Þetta var gott tilboð, með fullri virðingu fyrir okkur og fyrir virði leikmannsins. Þetta gefur okkur tækifæri á að kaupa nýjan leikmann því við þurfum á nýjum leikmanni að halda," sagði Jose Mourinho á fundinum.

„Við höfum grætt mikið á fjárfestingu félagsins í Juan og sölurnar á Juan og Kevin De Bruyne koma okkur í góða stöðu gagnvart nýjum rekstrarreglum UEFA," sagði Mourinho.

„Ég spurði Juan um þetta þegar við fengum tilboðið og hann var ánægður með að fara. Þetta er frábært tækifæri fyrir hann en hann kemst þarna í annað stórlið í því landi sem hann vill spila. Við erum ekki á því eins og sum félög að það megi ekki selja leikmenn til erkifjendna," sagði Mourinho.

„Þetta er gott fyrir Juan og gott fyrir ensku úrvalsdeildina. Þetta var rétta tilboðið. Hann var frábær fyrir Chelsea og Chelsea reyndist honum líka frábærlega. Við óttumst ekki að hann fari þangað og slái í gegn. Við viljum bara að hann sé ánægður," sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×