Enski boltinn

Manchester City tapaði níu milljörðum á síðasta starfsári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það kostar sitt hjá Manchester City að vera með stórstjörnulið.
Það kostar sitt hjá Manchester City að vera með stórstjörnulið. Vísir/NordicPhotos/Getty
Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City eru sáttir með rekstur félagsins þrátt fyrir 51,6 milljóna punda tap á síðasta rekstrarári (9 milljarðar íslenskra króna) og ástaðan er að þeir næstum því helminguðu tap sitt frá árinu á undan.

Manchester City velti 271 milljónum punda, 52 milljörðum íslenskra króna, á tímabilinu 2012-13 sem var það næstmesta í deildinni á eftir nágrönnum þeirra í Manchester United.

Í raun má segja að rekstur City hafi gjörbreyst til hins betra á síðustu tveimur árum því tímabilið 2010-11 tapaði félagið 197.5 milljónum punda eða tæplega 38 milljörðum íslenskra króna.

City er að rembast við að standast nýjar rekstrarreglur UEFA og menn þar á bæ telja að sé tekið tillit til þeirra peninga sem fóru í mannvirki og yngri flokka starf á þessu tímabili þá ná félagið undir hámarkið sem er 37 milljóna punda tap á einu rekstrarári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×