Enski boltinn

Fabio og Jones til Cardiff

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Cardiff City.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Cardiff City. Vísir/Getty
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Cardiff, staðfesti á blaðamannafundi í dag að tveir nýjir leikmenn væru á leið til félagsins.

Bakvörðurinn Fabio kemur frá Manchester United og Kenwyne Jones, sóknarmaður hjá Stoke, kemur í skiptum fyrir Peter Odemwingie.

„Þeir munu báðir æfa í dag. Ég hitti þá rétt áðan og þetta er nánast klappað og klárt,“ sagði Solskjær við fjölmiðla í dag.

Áður hafði Solskjær fengið þrjá Norðmenn til félagsins - þá Mats Møller Dæhli, Magnus Wolff Eikrem og Jo Inge Berget.

Það er svo líklegt að Wilfried Zaha, sóknarmaður Manchester United, verði lánaður til Cardiff út leiktíðina. „Við erum vongóðir um að geta gengið frá því á næsta sólarhring eða svo.“


Tengdar fréttir

Solskjær að fylla Cardiff-liðið af Norðmönnum

Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Cardiff City er hrifinn af sínum gömlu lærisveinum hjá norska félaginu Molde en Norðmaðurinn hefur nú fengið þrjá landa sína til Wales.

Zaha á leið til Cardiff

Enskir fjölmiðlar fullyrða í dag að sóknarmaðurinn Wilfried Zaha verði lánaður frá Manchester United til Cardiff City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×