Enski boltinn

Zaha á leið til Cardiff

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wilfried Zaha, leikmaður Manchester United.
Wilfried Zaha, leikmaður Manchester United. Vísir/Getty
Enskir fjölmiðlar fullyrða í dag að sóknarmaðurinn Wilfried Zaha verði lánaður frá Manchester United til Cardiff City.

Zaha hefur fá tækifæri fengið með United á tímabilinu til þessa og mun hafa verið áhugasamur um að fara annað til að fá meira að spila.

Crystal Palace seldi Zaha til United fyrir sautján milljónir punda fyrir ári síðan en hann kláraði tímabilið með fyrrnefnda liðinu sem lánsmaður.

Í haust hefur hann komið við sögu í fjórum leikjum með United, þar af tveimur deildarleikjum.

Í fyrstu virtust forráðamenn United ekki áhugasamir um að sleppa Zaha. Hins vegar er Ashley Young kominn aftur af stað eftir meiðsli og þá virðist fátt geta komið í veg fyrir komu Juan Mata frá Chelsea.


Tengdar fréttir

Zaha vill freista gæfunnar hjá United

Sóknarmaðurinn Wilfried Zaha hjá Manchester United hefur ekki áhuga á því að spila sem lánsmaður hjá öðru liði á næsta keppnistímabili.

Heimasíða Manchester United: Zaha kemur í júlí

Manchester United er búið að staðfesta það á heimasíðu sinni að félagið hafi komist að samkomulagi við Crystal Palace um að kaupa vængmanninn Wilfried Zaha. Leikmaðurinn á bara eftir að fara í gegnum læknisskoðun seinna í dag.

Zaha segist aldrei hafa hitt dóttur Moyes

Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi um að Wilfried Zaha, leikmaður Man. Utd, væri að slá sér upp með dóttur knattspyrnustjórans, David Moyes, við litlar vinsældir stjórans.

Moyes: Zaha hefur ekki gert neitt rangt

David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, leyfir væntanlega Wilfried Zaha að fara á láni í janúar en þessi fyrrum leikmaður Crystal Palace hefur ekki fengið að spila eina einustu mínútu í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Zaha verður mögulega lánaður

David Moyes, stjóri Manchester United, hefur ekki útilokað að lána sóknarmanninn Wilfried Zaha til annars félags í Englandi á nýju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×