Robin Van Persie ánægður á Old Trafford og vill framlengja Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. mars 2014 08:15 Robin van Persie er ánægður að hans sögn. Vísir/Getty
Robin van Persie, framherji Manchester United, segist vilja endurnýja samninginn sinn á Old Trafford og gefur lítið fyrir þær sögusagnir að hann sé á útleið í sumar. „Sannleikurinn er sá að ég er mjög ánægður hérna. Ég skrifaði undir fjögurra ára samning og verð ánægður hér lengur en það. Næstu tvö árin er ég með samning,“ segir Van Persie. Einnig hefur mikið verið skrifað um að Hollendingurinn sé óánægður með þjálfunaraðferðir Davids Moyes en það er alrangt. „Æfingarnar eru frábærar og ég læri fullt af þeim á hverjum degi. Á milli okkar ríkir gagnkvæm virðing og vinnuumhverfið er gott. Stjórinn vill að hlutirnir virki og ég líka,“ segir hann. Þá var hann einnig spurður út í viðtöl sem hann hefur farið í að undanförnu. Í einu þeirra sagði hann liðsfélaga sína vera fyrir sér á vellinum. „Það má telja viðtölin sem ég hef farið í á fingrum annarrar handar þannig kannski þegar ég segi ekki of mikið breytir fólk því í eitthvað rosalegt. Ég sé kannski 10 prósent af því sem er skrifað um mig en það sem ég hef lesið nýlega um það sem ég hef sagt er ekki byggt á sannleikanum,“ segir Robin van Persie.
Enski boltinn Tengdar fréttir Messan: Van Persie er ofboðslega erfiður David Moyes stillti upp sínu besta liði og vann WBA en hollenski framherjinn er til vandræða á Old Trafford. 12. mars 2014 12:45 Van Persie: Við erum ömurlegir Robin van Persie viðurkennir að staða Manchester United sé slæm en að knattspyrnustjórinn David Moyes eigi að fá tíma til að snúa genginu við. 27. febrúar 2014 10:45 Van Persie: Liðsfélagarnir eru fyrir mér Robin van Persie segist neyddur til að breyta um leikstíl því leikmenn Manchester United séu að þvælast fyrir honum inn á vellinum. 26. febrúar 2014 09:30 Mest lesið Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti Alfreð brosti breitt: „Hafði hárrétt fyrir mér sem betur fer“ Handbolti Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi Handbolti Engar hópferðir Íslendinga til Herning Handbolti Þjálfari Dana um Ísland: „Nokkrir af bestu handboltamönnum heims“ Handbolti „Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann“ Handbolti ICE-fulltrúar á Vetrarólympíuleikunum: „Þetta er hersveit sem drepur“ Sport Danir kokhraustir: „Fílingurinn sá að þennan leik eigi þeir að vinna“ Handbolti Farseðill á næsta stórmót í höfn Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira
Messan: Van Persie er ofboðslega erfiður David Moyes stillti upp sínu besta liði og vann WBA en hollenski framherjinn er til vandræða á Old Trafford. 12. mars 2014 12:45
Van Persie: Við erum ömurlegir Robin van Persie viðurkennir að staða Manchester United sé slæm en að knattspyrnustjórinn David Moyes eigi að fá tíma til að snúa genginu við. 27. febrúar 2014 10:45
Van Persie: Liðsfélagarnir eru fyrir mér Robin van Persie segist neyddur til að breyta um leikstíl því leikmenn Manchester United séu að þvælast fyrir honum inn á vellinum. 26. febrúar 2014 09:30
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti