Þetta var algjör snilld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. mars 2014 07:00 Gylfi í leiknum gegn Southampton þar sem hann var hetja sinna manna í Tottenham. „
Þetta var algjör snilld,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson í samtali við Fréttablaðið í gær, daginn eftir að hann tryggði Tottenham sigur, 3-2, á Southampton. Gylfi kom inn á sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks og skoraði sigurmark heimamanna í uppbótartíma en gestirnir frá suðurströnd Englands höfðu byrjað miklu betur í leiknum og komist 2-0 yfir. Gylfi spilaði í uppáhaldsstöðunni sinni, fremst á miðjunni, eftir að hann kom inn á, rétt eins og gegn Benfica í Evrópudeild UEFA í síðustu viku. „Það skemmdi svo ekki fyrir að skora sigurmarkið,“ bætir Gylfi við og vonast vitaskuld til að fá fleiri tækifæri í þessari stöðu. „Maður vill fá að spila í sinni stöðu en ég hef mikið spilað á kantinum síðustu tvö ár og það verður þreytandi. Vonandi fæ ég fleiri tækifæri á miðjunni og þá verður það undir sjálfum mér komið að nýta þau,“ segir Gylfi. „Mér líður vel hjá Tottenham og ég er ánægður hér, eins og ég hef alltaf sagt. En ef ég þarf að spila mikið lengur á kantinum þarf maður að taka þessi mál til skoðunar.“Meiðslin voru pirrandi Gylfi hefur komið við sögu í nítján af 31 deildarleik Tottenham á tímabilinu, þar af ellefu sinnum sem byrjunarliðsmaður. Hann hefur spilað í samtals 999 mínútur og skorað fjögur deildarmörk – hin þrjú komu öll í september. En meiðsli settu strik í reikninginn á nýju ári og spilaði Gylfi lítið í janúar og ekkert í febrúar. „Ég neita því ekki að þetta tók svolítið á, sérstaklega þar sem ég hef verið heppinn með meiðsli í gegnum tíðina. Það var sérstaklega pirrandi að komast aftur af stað en meiðast þá strax aftur. En ég hef nú tekið þátt í þremur leikjum í röð og er alveg heill heilsu,“ segir hann. „Ég er því staðráðinn í að enda tímabilið vel miðað við allt sem á undan er gengið.“Sigurinn gaf okkur „búst“ Það hefur gengið á ýmsu síðustu vikurnar hjá Tottenham. Fyrir helgina hafði liðið tapað þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og fallið úr leik í Evrópudeild UEFA. Fjölmiðlar fjölluðu æ meira um stöðu Tims Sherwood knattspyrnustjóra sem gagnrýndi sjálfur leikmenn sína fyrir að vera ekki nógu grimmir inni á vellinum. Það gerði hann eftir 4-0 tap fyrir Chelsea fyrr í mánuðinum. „Við gerðum okkur allir grein fyrir því að við gerðum mistök sem kostuðu okkur þessi mörk,“ segir Gylfi sem sagði gagnrýni Sherwoods réttmæta á sínum tíma. „En svo kom tap fyrir Arsenal [1-0 á heimavelli] sem var mun súrara því þar áttum við mun meira skilið miðað við frammistöðuna.“ Á milli þessara leikja kom svo 3-1 tap fyrir Benfica á heimavelli í Evrópudeildinni. Gylfi og félagar voru reyndar nálægt því að snúa rimmunni sér í vil í seinni leiknum en nú horfir til betri vegar eftir sigurinn í gær. „Hann gaf smá „búst“ inn í hópinn,“ útskýrir Gylfi.Oft spurður um Liverpool Gylfi Þór fer í heimsókn á Anfield Road á sunnudag þar sem Tottenham mætir sjóðheitu liði Liverpool. „Það verður erfiður leikur og við þurfum að nota vikuna vel til að undirbúa okkur,“ segir Gylfi en Tottenham er sem stendur í fimmta sætinu, sex stigum á eftir Arsenal sem er í hinu eftirsótta fjórða sæti – því síðasta sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vann með Gylfa bæði hjá Swansea og Reading á sínum tíma. Gylfi hefur því ítrekað verið orðaður við Liverpool, nú síðast fyrir örfáum vikum. „Ég veit ekki hversu oft ég hef verið spurður út í það,“ sagði hann í léttum dúr. „En ég er ekkert að spá í því enda tel ég að það sé ekkert hæft í þeim sögusögnum.“
Enski boltinn Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Sjá meira