Úthúðað fyrir að slasa poppsöngvara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. september 2013 12:26 Agbonlahor og Tomlinson. Mynd/Samsett
Gabriel Agbonlahor, leikmaður Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, fékk að heyra það á samfélagsmiðlum í gærkvöldi frá aðdáendum hljómsveitarinnar One Direction. Agbonlahor var í Glasgow í gærkvöldi þar sem ágóðaleikur til styrktar Stilyan Petrov, fyrrverandi leikmanni Celtic og Aston Villa, sem leggja þurfti skóna á hilluna eftir að hafa greinst með hvítblæði. Fjölmörg kunnugleg andlit tóku þátt í leiknum og þeirra á meðal var Louis Tomlinson, söngvari One Direction. Í eitt skipti í leiknum fékk Tomlinson boltann og Agbonlahor pressaði hann strax. Sparkaði hann boltanum í burtu en óhætt er að segja að Tomlinson hafi fundið fyrir tæklingunni og lá meiddur eftir. Þurfti hann að yfirgefa völlinn og ekki bætti úr skák þegar hann fann til ógleði og leið illa á hliðarlínunni. Aðdáendur One Direction brugðust illa við tilburðum Agbonlahor. Hótuðu þeir honum öllu illu á Twitter. Var honum bæði hótað lífláti og að skorið yrði undan honum svo tvö af grófari dæmunum séu nefnd. Agbonlahor til varnar þá var ekkert að tæklingu hans. Um leið og ljóst var að Tomlinson þyrfti á aðhlynningu að halda skokkaði Agbonlahor í áttina til hans og baðst afsökunar.Tæklinguna má sjá á vef BBC.
Enski boltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Fleiri fréttir Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Sjá meira