Björn Bergmann með sitt fyrsta mark á árinu 2013 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2013 21:41 Björn Bergmann Sigurðarson. Mynd/NordicPhotos/Getty
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði sitt fyrsta mark í tvo og hálfan mánuð þegar hann kom Úlfunum yfir snemma leik í ensku b-deildinni í kvöld. Það dugði samt ekki því bæði Íslendingaliðin í b-deild enska boltans töpuðu leikjum sínum í kvöld. Kári Árnason og félagar í Rotherham unnu hinsvegar góðan útisigur. Wolves tapaði 1-2 á útivelli á móti Barnsley. Björn Bergmann kom Wolves í 1-0 eftir aðeins rétt rúmlega sex mínútna leik þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu Bakary Sako. Chris Dagnall jafnaði fyrir Barnsley eftir aðeins þriggja mínútna leik í seinni hálfleik og Jacob Mellis skoraði síðan sigurmark Barnsley á 73. mínútu. Björn Bergmann var tekinn af velli á 84. mínútu. Þetta var fyrsta mark Björns Bergmann síðan að hann skoraði í 4-1 sigri á Bristol City 1. desember en síðan var hann búinn að spila átta deildarleiki í röð án þess að skora. Björn Bergmann hefur nú skorað 4 mörk í 24 leikjum í ensku b-deildinni á þessu tímabili.Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Cardiff City þegar liðið tapaði 0-2 á heimavelli á móti Brighton. Aron Einar spilaði allan leikinn og Heiðar Helgason spilaði síðustu sex mínúturnar. Mörk Brighton & Hove Albion komu á 43. og 90. mínútu. Cardiff City er þrátt fyrir tapið með fimm stiga forskot á toppi ensku b-deildarinnar.Kári Árnason og félagar í Rotherham unnu 2-1 útisigur á Bristol Rovers í ensku d-deildinni og spilaði Kári allan leikinn. Mörk Rotherham komu með tveggja mínútna millibili um miðjan seinni hálfleik en Bristol Rovers minnkaði muninn níu mínútum fyrir leikslok. Sigurinn skilaði Rotherham United liðinu upp í 3. sæti deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Fleiri fréttir Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sjá meira