Heimsmeistaramótið í rallýakstri hættir við keppni í Sádi-Arabíu Andri Broddason skrifar 17. september 2026 22:02 Ökumennir Thierry Neuville og Sebastien Ogier munu ekki geta endurtekið sigurinn sinn í Sádi-Arabíu. Luca Barsali/Getty Images Hætt hefur verið við síðustu umferð heimsmeistaramótsins í rallýakstri sem átti að fara fram í Sádi-Arabíu. Mótið verður stytt úr 14 umferðum niður í 13 og mun mótið klárast á Ítalíu í staðinn.
Mikil átök eru í Mið-Austurlöndum milli hinna ýmsu ríkja sem hefur vafist fyrir íþróttum á svæðinu. Fyrr í ár gaf Formúla 1 út að færa þyrfti tvær keppnir sem áttu að fara þar fram og nú hefur heimsmeistaramótið í rallýakstri gert slíkt hið sama. Lausn Formúlu 1 var að finna aðrar brautir í staðinn en það mun ekki gerast á heimsmeistaramótinu í rallýakstri. Keppnin í Sádi-Arabíu var haldin í fyrsta skipti á síðasta ári en nú er óvíst hvenær næsta keppni verður haldin þar. 🚨 BREAKING NEWS 🚨 Rally Italia Sardegna will host the final round of the 2026 FIA World Rally Championship 🇮🇹 Rally Saudi Arabia will not form part of this year’s WRC calendar due to ongoing regional developments affecting logistical arrangements. The event will still… pic.twitter.com/vOjckBzo98— FIA (@fia) September 17, 2026 Ben Sulayem, forseti alþjóðaakstursíþróttasambandsins FIA, sagði ákvörðunina hafa verið erfiða. „Við höfum unnið náið með félögum okkar í Sádi-Arabíu til að reyna að halda Rallýkeppnina í Sádi-Arabíu en vegna aðstæðna á svæðinu verður ekki hægt að halda þennan hluta heimsmeistaramótsins í rallýakstri.“ Síðasta keppnin verður því haldin eftir tvær vikur og munu úrslitin ráðast þar. Bretinn Elfyn Evans situr á toppi heimsmeistaramótsins fyrir síðustu keppnina en hann er með sautján stiga forskot á Sami Pajari frá Finnlandi. 35 stig eru í boði í síðustu keppninni og því mikilvægt fyrir Pajari að ná sem flestum stigum.
Akstursíþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira