„United þarf yfirmann knattspyrnumála“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. september 2013 13:15 Frá vinstri: John W Henry, Ian Ayre, Tom Werner og Damien Comolli fagna deildabikartitlinum síðastliðinn vetur. Nordicphotos/Getty
Manchester United þarf aðstoð þegar kemur að félagaskiptum leikmanna. Þetta er mat Damien Comolli sem gegndi stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Tottenham og Liverpool. David Moyes, stjóri Manchester United, og framkvæmdastjórinn Ed Woodward eru tiltölulega nýkomnir til starfa hjá Englandsmeisturunum. Óhætt er að segja að frammistaða þeirra á félagaskiptamarkaðnum hafi valdið mörgum stuðningsmönnum liðsins vonbrigðum. Félaginu tókst ekki að klófesta fjölmarga leikmenn sem sóst var eftir. Marouane Fellaini gekk svo í raðir félagsins á lokaandartökum félagaskiptagluggans fyrir 27,5 milljónir punda. „Ef það er eitthvert félag sem vantar yfirmann knattspyrnumála þá er það United,“ hefur BBC eftir Comolli. „Það myndi auðvelda bæði Moyes og Woodward störf sín.“ Sir Alex Ferguson yfirgaf United í lok síðustu leiktíðar eftir tæp 27 ár í starfi. David Gill, framkvæmdastjóri félagsins, hélt einnig á braut í júní. Comolli segir að yfirmaður knattspyrnumála hefði hjálpað þeim tveimur og létt pressuna sem störfunum fylgi. „David kom ekki til félagsins fyrr en 1. júlí sem er frekar seint,“ sagði Comolli. „Vandamál United er að tveir mikilvægustu starfsmenn félagsins, Sir Alex og David Gill, hættu störfum og nýir aðilar komu inn í sínum fyrsta félagaskiptaglugga.“ Comolli segir ljóst að annaðhvort hafi félagið ekki verið tilbúið eða tvímenningarnir ekki reiknað með því hve erfitt starfið yrði og því lent í erfiðri stöðu.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira