Enski boltinn

Messan: Varnarleikur Cardiff til fyrirmyndar

Nýliðar Cardiff sýndu stórstjörnum Manchester City enga virðingu í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Cardiff kom á óvart með því að vinna 3-2 sigur á stórliðinu frá Manchester. Frábær frammistaða liðsins var tekin fyrir í Messunni þar sem varnarleikurinn var greindur.

Guðmundur Benediktsson stýrði þættinum venju samkvæmt en að þessu sinni jusu Bjarni Guðjónsson og Gunnleifur Gunnleifsson úr viskubrunni sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×