Enski boltinn

Soldado lofar yfir tuttugu mörkum fyrir Tottenham

Stefán Árni Pálsson skrifar
Soldado
Soldado Mynd / Getty Images
Roberto Soldado, nýr leikmaður Tottenham, ætlar sér að skora yfir tuttugu mörk á sínu fyrsta tímabili með liðinu í vetur.

Soldado gekk í raðir Tottenham í þessum mánuði frá Valencia en leikmaðurinn skoraði 30 mörk fyrir Spánverjana á síðasta tímabili.

„Ég set markmiðið á að skora yfir tuttugu mörk á tímabilinu,“ sagði Soldado í viðtali við enska fjölmiðla.

„Ég mun fá mikla aðstoð frá samherjum mínum og með þeim mun ég ná takmarkinu.“

Gareth Bale gerði yfir tuttugu mörk á síðasta tímabili en fyrir þann tíma hafði enginn leikmaður Tottenham náð því í 18 ár.

Jürgen Klinsmann náði að skora yfir tuttugu mörk tímabilið  1994/95.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×