Enski boltinn

Vidic: Hópurinn er nógu sterkur

Nemanja Vidic.
Nemanja Vidic.
Man. Utd hefur ekkert gengið á leikmannamarkaðnum í sumar en fyrirliði liðsins, Nemanja Vidic, segir að liðið sé þrátt fyrir það nógu sterkt til þess að verja titilinn.

"Við erum með gott lið og breiðan hóp. Það er fullt af ungum strákum í hópnum sem hafa tekið miklum framförum á síðustu tveim árum. Það er afar mikilvægt," sagði Vidic.

"Ég trúi því að við séum með nógu sterkan hóp til þess að keppa um alla titla. Það væri fínt að fá einn eða tvo leikmenn en við erum samt í góðum málum."

Man. Utd eyddi mestum tíma af sumrinu í það að reyna að kaupa Cesc Fabregas frá Barcelona en það gekk ekki upp.

"Cesc er frábær leikmaður en það er ekki undir mér komið að segja hverjir séu réttir fyrir félagið eða ekki. Við pælum ekki mikið í þessu. Við einbeitum okkur að leiknum og að hjálpa stjóranum að ná árangri."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×