Enski boltinn

Arsenal með lokaboð í Suarez

Stefán Árni Pálsson skrifar
Enska knattspyrnuliðið Arsenal mun vera undirbúa lokaboð í framherjann Luis Suarez frá Liverpool en liðið virðist vera reiðubúið að borga 50 milljónir punda fyrir Úrúgvæann.

Liverpool hefur fengið tvö tilboð frá Arsenal í leikmanninn en þeim var báðum hafnað. Suarez vill ólmur yfirgefa Liverpool og hefur ekki farið leynt með það í fjölmiðlum í sumar.

Suarez hefur æft einn að undanförnu og staða hans hjá Liverpool virkilega alvarleg. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur farið fram á það við leikmanninn að hann biðjist opinberlega afsökunar á hegðun sinni.

Suarez gerði 23 mörk fyrir Liverpool á síðustu leiktíð og var stórkostlegur. Hann var aftur á móti mikið til vandræða á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×