Enski boltinn

Ramsey fékk meiðsli í afmælisgjöf

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Ramsey vissi strax að eitthvað var að.
Aaron Ramsey vissi strax að eitthvað var að. Mynd/NordicPhotos/Getty
Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal, verður ekkert meira með liðinu yfir hátíðirnar eftir að hafa meiðst í sigrinum á West Ham á Upton Park í dag. Arsenal vann leikinn 3-1 og komst aftur á toppinn í ensku úrvalsdeildinni.

Ramsey hefur verið frábær á tímabilinu en hann þurfti að yfirgefa völlinn á 64. mínútu eftir að hafa meiðst aftan í læri.

„Þetta lítur út fyrir að vera tognun á læri. Ég veit ekki hversu alvarleg hún en hann spilar ekki meira yfir jólahátíðina. Þetta var leiðinlegt því hann átti afmæli í dag," sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal.

Næstu leikir Arsenal eru á móti Newcastle á sunnudaginn kemur og síðan á móti Cardiff á nýársdag. Eftir rúmar tvær vikur er síðan bikarleikur á móti Tottenham.

„Ég geri mér ekki grein fyrir því hversu lengi hann verður frá. Við munum vita meira á morgun. Hann bað strax um skiptingu," sagði Wenger.

Aaron Ramsey varð 23 ára gamall í dag. Hann hefur skorað átta mörk og lagt upp önnur sex í ensku úrvalsdeildinni í vetur en það hefur aðeins hægt á kappanum upp á síðkastið.

Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal, labbar hér meiddur af velli.Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×