Vongóð enduðu í votri gröf Þorgils Jónsson skrifar 4. október 2013 08:30 Líkin voru lögð á hafnarbakkann í Lampedúsa í gær. NordicPhotos/AFP
114 flóttamenn frá Erítreu, Gana og Sómalíu fórust eftir að skipi, sem átti að flytja þá frá Líbíu til ítölsku eyjunnar Lampedúsa, hvolfdi snemma í gærmorgun. Um 200 er enn saknað. Þeir bætast í hóp um 6.500 flóttamanna sem taldir eru hafa látist við að reyna að komast frá ströndum Norður-Afríku til Evrópu yfir Sikileyjarsund frá árinu 1994. Þar af fórust þrettán menn í síðustu viku þegar bátur þeirra strandaði síðastliðinn mánudag, rétt undan ströndum Sikileyjar. Síðustu ár hafa tugir þúsunda flóttafólks lagt á sig erfitt ferðalag til Líbíu og Túnis frá öðrum hlutum Afríku og Mið-Austurlöndum í von um betra líf í Evrópu. Þaðan hefur það greitt stórfé fyrir far sjóleiðina yfir til Ítalíu eða Möltu. Skipin sem notuð eru til að ferja fólkið eru oftar en ekki algjörlega vanbúin til þessarar ferðar, þrátt fyrir að Lampedúsa sé einungis 113 kílómetrum undan strönd Túnis, og engar öryggisráðstafanir eru til staðar. Flóttamannastraumurinn var langþyngstur á meðan á róstunum í Norður-Afríku stóð í tengslum við arabíska vorið svokallaða, en hafði gengið niður allt fram á síðustu mánuði þegar flóttafólk frá Sýrlandi bættist í þennan hóp. Alls komu 8.400 flóttamenn til Ítalíu og Möltu á fyrri helmingi ársins, en það eru nær tvöfalt fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs þegar 4.500 komust þessa leið. Á fyrri helmingi þessa árs er vitað um 40 sem létust á þessari leið, en allt árið í fyrra fórust um 500. Árið 2011 er langsamlega mannskæðasta árið í þessu tilliti en þá fórust rúmlega 1.500 manns. Lengi hefur verið deilt á vinnulag ítalskra og maltneskra yfirvalda, sem og Evrópusambandið, fyrir að gera allt of lítið til að bregðast við þessum mikla vanda sem flóttamannastraumurinn er. Ítalía og Malta (auk Grikklands, sem tekur á móti fjölda flóttafólks sem kemur yfir landamærin við Tyrkland) hafa einnig deilt á hin ESB-ríkin að leggja ekki sitt af mörkum. Harmleikurinn í gær vakti mikil viðbrögð um heim allan þar sem Cecilia Malmström, framkvæmdastjóri innanríkismála hjá ESB, kallaði meðal annars eftir því að aðildarríki styddu innleiðingu nýrra reglna sem eiga að auðvelda starf við að finna og bjarga bátum á þessari leið, og eins að berjast gegn glæpahópum sem misnota neyð fólks í gróðaskyni án tillits til öryggis þess.Allt að 500 í feigðarferðinni Skipið sem um ræðir er 20 metrar á lengd og lagði úr höfn í Misrata í Líbíu tveimur dögum áður en ósköpin dundu yfir. Talið er að á milli 450 og 500 manns hafi verið um borð, þar af 100 konur og tíu börn. Þegar skipið tók að nálgast Lampedúsa var drepið á vélinni, eins og vanalegt þykir í svona ferðum. Jafnan eru símar eða talstöðvar meðferðis til að kalla á hjálp en ekki í þetta sinn. Einhver um borð brá á það ráð að kveikja eld í klæðisbút til að ná athygli nærliggjandi skipa en eldurinn virðist hafa breiðst út, sem varð til þess að farþegarnir flúðu allir út á sömu hlið skipsins sem valt á hliðina og fólkið féll í sjóinn. Þeir sem komust lífs af voru langflestir karlmenn. Sárafáar konur voru meðal þeirra sem bjargað var og engin börn.
Mest lesið Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Innlent Happdræti Háskólans varar við svikurum Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Innlent Fleiri fréttir Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Sjá meira