Enski boltinn

Tveir nýir stjórar berjast um England

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það verður allt lagt undir á Old Trafford í kvöld.
Það verður allt lagt undir á Old Trafford í kvöld. nordicphotos/getty
England mun nötra í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Tveir nýir stjórar eru við stjórnvölinn og eins og svo oft áður verður allt lagt undir þegar þessi tvö lið etja kappi á Old Trafford.

David Moyes tók við Manchester United fyrir tímabilið þegar Sir Alex Ferguson ákvað að hætta sem stjóri liðsins. Þetta verður fyrsta alvöru prófið fyrir þann skoska er hann mætir José Mourinho og lærisveinum hans í Chelsea.

Portúgalinn tók við Chelsea á ný í sumar en hann stýrði Chelsea á árunum 2004-2007. Öll augu eiga eftir að beinast að Wayne Rooney, framherja Manchester United, en hann hefur verið orðaður við Chelsea í allt sumar.

Leikmaðurinn hefur gefið það út að hann vilji færa sig um set og ganga í raðir þeirra bláklæddu en forráðamenn Manchester United vilja alls ekki selja leikmanninn, og hvað þá til erkifjendanna í Chelsea.

Moyes sagði í enskum fjölmiðlum um helgina að Wayne Rooney gæti alveg eins verið í byrjunarliðinu á Old Trafford í kvöld.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 & HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×