Ungir enskir leikmenn fá ekki tækifæri í ensku úrvalsdeildinni. Stefán Árni Pálsson skrifar 21. ágúst 2013 06:00 Sir Trevor Brooking og Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, eiga mikið verk óunnið fyrir enska knattspyrnu.nordicphotos/getty
Það voru ákveðin tímamót í enskri knattspyrnu um liðna helgi þegar enska úrvalsdeildin fór í gang á ný. Aldrei hafa færri enskir leikmenn verið í byrjunarliðum í úrvalsdeildinni og þykir þetta mikið áhyggjuefni fyrir enska knattspyrnu í heild sinni. Rúmlega 33 prósent þeirra leikmanna sem hófu leik með sínum liðum voru Englendingar en í ágúst árið 1992 var þessi tala 73 prósent. Enska úrvalsdeildin kemst ekki með tærnar þar sem aðrar deildir í Evrópu hafa hælana en í spænsku, þýsku, ítölsku og frönsku úrvalsdeildunum er þessi tala mun hærri. Af 61 leikmanni sem hefur gengið til liðs við félag í ensku úrvalsdeildinni í sumar eru aðeins tólf enskir. Liðin sem höfnuðu í efstu átta sætunum í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili hafa ekki fengið einn einasta enskan leikmann í sínar raðir. Enska U-21 árs landslið Englendinga valtaði yfir það skoska, 6-0, í vináttulandsleik í síðustu viku en aðeins voru þrír leikmenn liðsins í byrjunarliðinu í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. „Við gerum okkur grein fyrir stöðunni og erum ávallt að vonast eftir því að fleiri ungir enskir leikmenn fái tækifærið hjá liðum í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Sir Trevor Brooking, hæstráðandi hjá enska knattspyrnusambandinu, í samtali við fjölmiðla ytra. U-21 landslið Englendinga fékk ekki eitt einasta stig á Evrópumótinu í Ísrael í sumar og fóru þá viðvörunarbjöllur að hringja.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira