Enski boltinn

Soldado: Tottenham á heima í Meistaradeild Evrópu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / heimasíða tottenham
Spánverjinn Roverto Soldado var kynntur sem leikmaður Tottenham Hotspurs  í dag en hann var keyuptur frá Valencia.

Leikmaðurinn skoraði 80 mörk í 145 leikjum fyrir Valencia og mun líklega styrkja lið Tottenham gríðarlega fyrir komandi átök í ensku deildinni.

„Það er mikill heiður fyrir mig að ganga til liðs við klúbb eins og Tottenham,“ sagði Soldado við sjónvarpsstöð Tottenham.

„Þessi treyja hefur svo mikla sögu og ég vona innilega að ég nái að gera góða hluti fyrir félagið, skora jafnvel einhver mörk.“

„Þetta er lið sem á heima í Meistaradeild Evrópu og ég mun gera mitt besta til að koma liðinu á þann stall.“

„Hópurinn sem við erum með í dag er frábær og margir stórkostlegir leikmenn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×