Enski boltinn

Kagawa: Ég verð að spila meira

Kagawa er mikið á bekknum.
Kagawa er mikið á bekknum.
Japaninn Shinji Kagawa hefur ekki fengið að spila mikið með Man. Utd í vetur og við það er Japaninn eðlilega ekki sáttur.

Kagawa hefur aðeins verið í byrjunarliði Man. Utd þrisvar sinnum í vetur og hann segir að þessi litli leiktími sé farinn að hafa áhrif á frammistöðu hans með landsliðinu.

"Það er alltaf gott að komast út á völlinn. Ég hef ekki spilað nógu mikið og því var ég ekki alveg líkur sjálfum mér í síðustu landsleikjum," sagði Kagawa.

"Á svona tímum þarf ég að bæta sjálfan mig og minn leik. Ég fann samt að ég verð að spila meira."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×