Enski boltinn

Gerrard: Wilshere verður einn daginn fyrirliði Englands

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wilshere hér lengst til vinstri og Gerrard lengt til hægri.
Wilshere hér lengst til vinstri og Gerrard lengt til hægri. Mynd / Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði enska landsliðsins, styður landa sinn Jack Wilshere sem arftaki hans sem fyrirliði hjá Englandi.

Gerrard telur að leikmaðurinn eigi eftir að eiga farsælan feril hjá enska landsliðinu og ná í 100 leikja klúbbinn.

„Það er enginn vafi í mínum huga að Wilshere eigi einn daginn eftir að verða magnaður fyrirliði fyrir enska landsliði,“ sagði Gerrard.

„Þetta er leikmaður með mikla hæfileika og manni hlakkar alltaf til að spila með honum á miðjunni með enska landsliðinu.“

„Þegar hann kemst á minn aldur mun hann án efa hafa spilað yfir 100 landsleiki og verður orðinn fyrirliði liðsins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×