Enski boltinn

Scott Parker á leiðinni til QPR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Scott Parker
Scott Parker Mynd / getty images
Englendingurinn Scott Parker, leikmaður Tottenham Hotspur, mun líklega ganga til liðs við QPR í ensku 1. deildinni.

Þessi 32 ára miðjumaður hefur verið hjá Tottenham síðan árið 2011 þegar hann gekk til liðsins frá West Ham.

Hann virðist ekki vera hluti af framtíðaráformum Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, og hefur fengið leyfi til að yfirgefa liðið.

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri QPR, fékk Parker til lið við Tottenham á sínum tíma og mun nú greiða tvær milljónir punda fyrir leikmanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×