Enski boltinn

Aron Einar kominn í sögubækurnar hjá Cardiff | Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, skoraði í dag fyrsta mark félagsins í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Cardiff kom upp í úrvalsdeildina fyrir leiktíðina og mætu Manchester City í Wales í dag.

Nýliðarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu frábæran sigur á Manchester City 3-2.

Aron Einar skoraði fyrsta mark Cardiff í leiknum þegar hann jafnaði metin í 1-1.

Hér að ofan má sjá myndband af markinu hjá landsliðsfyrirliðanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×