Enski boltinn

Emil og Jóhann Berg á leið til Englands?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson.
Landsliðsmennirnir Emil Hallfreðsson og Jóhann Berg Guðmundsson hafa báðir verið orðaðir við lið á Englandi á síðustu dögum.

Emil, sem leikur með Hellas Verona á Ítalíu, er sagður hafa vekið áhuga Paolo Di Canio, stjóra Sunderland. Emil var lykilmaður í liði Verona sem vann sér sæti í ítölsku úrvalsdeildinni í vor.

Jóhann Berg hefur verið í herbúðum AZ síðan 2009 og er samkvæmt fréttasíðu Sky Sports undir smásjá nokkurra liða í ensku B-deildinni. Meðal þeirra munu vera Bolton, Nottingham Forest og Wigan.

Jóhann Berg er 22 ára gamall og var nálægt því að semja við Hamburg á sínum tíma, áður en hann ákvað að fara til Hollands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×