Enski boltinn

Rodgers: Ótrúleg frammistaða hjá Suarez

Suarez fagnar í kvöld.
Suarez fagnar í kvöld.
Luis Suarez er heitasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann skoraði fjögur mörk í kvöld og lagði upp eitt er Liverpool valtaði yfir Norwich.

Hann varð í kvöld fyrsti maðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar sem skorar þrjár þrennur gegn sama félaginu. Hann er einnig þriðji leikmaðurinn í sögu Liverpool sem skorar þrennu í fyrri hálfleik.

„Öll mörkin hans voru frábær í þessum leik. Ótrúleg frammistaða hjá ótrúlegum leikmanni. Það var virkilega ánægjulegt að fylgjast með þessu," sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, eftir leik.

„Það var svo gaman að horfa á liðið. Fullt af hugmyndum, vinnsla og glæsileg mörk. Það er ekki hægt að biðja um meira. Suarez vann fyrir kaupinu sínu í kvöld og ég held að fólk sjái hversu ánægður hann er."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×