Enski boltinn

Barry má fara frá City

Gareth Barry.
Gareth Barry.
Staða Gareth Barry hjá Man. City er erfið og hann má ráða því sjálfur hvort hann verður áfram hjá liðinu eða fer annað.

Hinn 32 ára gamli Barry er á sínu síðasta samningsári hjá Man. City. Hann mun glíma við meðal annars Fernandinho um stöðu í liðinu en hann var keyptur á 30 milljónir punda í sumar.

"Ég er búinn að ræða við Gareth og hann vill vera hér áfram og berjast fyrir sæti sínu. Ef hann fær betra tækifæri annars staðar þá ræður hann því hvað hann gerir," sagði Manuel Pellegrini, stjóri City.

Everton er sagt hafa mikinn áhuga á því að fá Barry lánaðan í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×