Moyes mætir í risaslag á Anfield Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. ágúst 2013 09:00 David Moyes og Brendan Rodgers. Mynd/NordicPhotos/Getty
David Moyes fær enn eina prófraunina í starfi stjóra Manchester United á sunnudag þegar hann mætir með strákana sína á Anfield í Liverpool. Þá getur hann unnið bug á eigin Liverpool-grýlu, en í ellefu tilraunum tókst honum aldrei að stýra Everton til sigurs á Anfield. „Ég efast nú um að ég fái betri móttökur sem stjóri Manchester United en stjóri Everton. Það er alltaf erfitt að mæta á Anfield en ég hlakka til leiksins,“ sagði Moyes á blaðamannafundi í gær. Liverpool hefur unnið 1-0 sigur í tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Daniel Sturridge hefur skorað bæði mörk Rauða hersins, en enski framherjinn hefur skorað tíu mörk í síðustu átta leikjum liðsins og er sjóðandi heitur. Með sigri getur Liverpool jafnað sína bestu byrjun í ensku úrvalsdeildinni. Liðið vann síðast sigra í fyrstu þremur leikjunum í deildinni undir stjórn Roys Evans haustið 1995. Gylfi Þór Sigurðsson verður í leikmannahópi Tottenham sem sækir Arsenal heim í Lundúnaslag. Bæði lið unnu góða sigra í Evrópukeppnum í vikunni. Tottenham hefur byrjað tímabilið á sama hátt og Liverpool, unnið tvo 1-0 sigra með mörkum Roberto Soldado úr vítaspyrnum. Þá reyna Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff að fylgja eftir sigrinum á Manchester City um síðustu helgi þegar liðið tekur á móti Everton.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Þrótturum mistókst að komast á toppinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Íslenski boltinn Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslenski boltinn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira