Enski boltinn

Stuðningsmaður West Ham dæmdur í eins árs fangelsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shaun Sheridan
Shaun Sheridan
Shaun Sheridan, gallharður stuðningsmaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að skipuleggja hópslagsmál gegn stuðningsmönnum Millwall á leik í enska bikarnum á síðustu leiktíð. 

Shaun Sheridan er hluti að frægri fótboltabulluklíku sem kallar sig Inter City Firm.

Millwall mætti Dagenham and Redbridge í þriðju umferð enska bikarsins og þá réðust meðlimir klíkurnar á stuðningsmenn Millwall og því var um mjög svo skipulagðan glæp.

Sheridan var einnig dæmdur til að halda sig einni mílu frá öllum leikjum West Ham United og Millvall næstu sjö árin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×