Enski boltinn

Giroud: Við þurfum að fá nýjan framherja

Olivier Giroud.
Olivier Giroud.
Það eru ekki bara stuðningsmenn Arsenal sem vilja sjá ný andlit á Emirates-vellinum því Olivier Giroud, leikmaður liðsins, hefur óskað eftir nýjum framherja.

Arsenal hefur verið orðað við Gonzalo Higuain, Luis Suarez og Wayne Rooney í sumar en enginn er enn kominn til félagsins.

Eini leikmaðurinn sem Arsenal hefur fengið er Yaya Sanogo en hann kom frítt til félagsins.

"Það er nauðsynlegt fyrir félagið að fá nýjan framherja. Það gæti breytt miklu," sagði Giroud við La Parisien.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×